Um Hlýjuna

Hlýjan býður upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 13 til 18 ára í Reykjanesbæ​. Þjónustan er gjaldfrjáls.

Ungmenni fá viðtal hjá ráðgjafa sem hlustar, veitir stuðning og ráðleggingar við hvers kyns vandamálum, aðstoðar við úrlausnir og/eða hjálpar viðkomandi að komast í viðeigandi úrræði ef þörf er á​

​​

Ekki þarf tilvísun til að sækja þjónustu Hlýjunnar.


Við bendum á að einungis er hægt að bóka eitt viðtal í senn, og þarf því að bóka næsta viðtal eftir að fyrra hefur farið fram.